148. löggjafarþing — 77. fundur,  12. júní 2018.

skattleysi uppbóta á lífeyri.

649. mál
[15:25]
Horfa

Ólafur Ísleifsson (Flf) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Hér er til atkvæðagreiðslu mál sem bæta mun hag fjölda fólks þegar frumvarpið sem ráðherra er falið að leggja fram eigi síðar en 1. nóvember næstkomandi verður orðið að lögum. Allir flokkar sem sæti eiga á Alþingi standa sameinaðir að baki málinu sem Flokkur fólksins tók upp þegar eftir að þing kom saman í desember. Mjög eindregnar yfirlýsingar flutningsmanna úr öllum flokkum við umræðu um þingsályktunartillöguna senda skýr skilaboð um þingviljann í þessu réttlætismáli.