148. löggjafarþing — 77. fundur,  12. júní 2018.

skattleysi uppbóta á lífeyri.

649. mál
[15:27]
Horfa

Ólafur Þór Gunnarsson (Vg) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Það mál sem við greiðum atkvæði um er gott mál. Það er að stofninum til komið frá þingmönnum Flokks fólksins og þau eiga þakkir fyrir það. Þetta er réttlætismál sem hefur lengi verið í umræðunni en er nú borið upp af þingmönnum allra flokka að frumkvæði Flokks fólksins og fagnaðarefni að þingheimur skuli geta sameinast um greiða götu þessa góða máls.