148. löggjafarþing — 77. fundur,  12. júní 2018.

skattleysi uppbóta á lífeyri.

649. mál
[15:33]
Horfa

Anna Kolbrún Árnadóttir (M) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Ég vil byrja á því að óska Flokki fólksins innilega til hamingju. Ég vil líka óska Flokki fólksins til hamingju með að stjórnarliðar virði afgreiðslu málsins í þingsal. Ég vil nefnilega benda á að Flokkur fólksins átti annað mál í velferðarnefnd sem fékk því miður ekki að fara þaðan út og í þingsal aftur.