skattleysi uppbóta á lífeyri.
Herra forseti. Ég vil eins og aðrir óska Flokki fólksins til hamingju með þetta mál. Ég vil einnig lýsa ánægju minni með vinnu hv. þingmanna í efnahags- og viðskiptanefnd þar sem unnið var með upphaflega frumvarpið og farið yfir málið. Í ljós kom að þarna voru einhverjar aukaverkanir sem hefðu komið fram ef við hefðum samþykkt frumvarpið eins og það var. Allir nefndarmenn lögðu sig fram við að reyna að finna lausn á málinu og koma því áfram. Til þess að hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra fyndi þungann í málinu og stuðning við málið var ákveðið að allir flokkar myndu bera upp tillögu til þingsályktunar. Við vitum hvað verður um ráðherra sem hefur ekki stuðning þingsins, þannig að hann verður að fara eftir þessari samþykktu tillögu sem ég er afskaplega ánægð með.