148. löggjafarþing — 77. fundur,  12. júní 2018.

afgreiðsla máls frá Miðflokknum.

[15:52]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (M):

Virðulegi forseti. Mig langar að spyrja hæstv. forseta einnar spurningar í ljósi orða hans áðan, því að ég tel að svör forseta skipti töluvert miklu máli upp á framhald þingstarfa það sem eftir lifir af kjörtímabilinu. Heyrði ég rétt, sagði hæstv. forseti úr forsetastól að hann teldi að sá háttur sem hafa ætti við afgreiðslu á máli Miðflokksins væri innan þess samkomulags sem gert var? Sagði hann það úr forsetastól? Var hann að skera úr og kveða upp úr með það að sú meðferð sem hafa á um mál Miðflokksins sé hluti af því samkomulagi sem gert var? Þetta er mjög mikilvægt, því að mér heyrðist forseti segja það. Því spyr ég og óska eftir svörum frá forseta.