afgreiðsla máls frá Miðflokknum.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að hrósa hæstv. forseta fyrir ágætisfundarstjórn. Mér hefur orðið tíðrætt um ábyrgð hér í þessum fundarstól og mér er hún hugleikin. Ég mun aldrei taka undir þann málflutning, sem ég heyri hjá hv. þingmönnum, sumum, að það sé öðrum að kenna að þeir standi í ræðustól í það og það skiptið. Það er engum öðrum en mér um það að kenna að ég stend hér. Á sama hátt er það val allra þeirra þingmanna sem hafa komið hingað upp í dag að tjá sig.
Ég verð að lýsa yfir vonbrigðum með það að við getum ekki einfaldlega horfst í augu við það að það eru fleiri en einn aðili að þessu máli. Hér talaði á undan mér formaður flokks og hér hafa fleiri formenn flokka talað. Af hverju talar fólk ekki bara saman frekar en að vísa ábyrgðinni annað? Hér talaði hv. þm. Jón Þór Ólafsson um að afstaða Miðflokksins ætti ekki að koma fólki á óvart. Jú, hún kom mér á óvart. Hv. formaður Miðflokksins (Forseti hringir.) situr í efnahags- og viðskiptanefnd og hefur vitað það síðan 8. júní, föstudaginn síðasta, hver var ætlun (Forseti hringir.) meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar. Af hverju svarar hann engu til um það af hverju hann gerði ekki athugasemdir við það fyrr?