148. löggjafarþing — 77. fundur,  12. júní 2018.

um fundarstjórn.

[18:03]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Forseti hefur ekki aðrar upplýsingar en þær að hartnær klukkustundarlangur fundur formanna stjórnmálaflokkanna skilaði ekki niðurstöðu. Staðan er óbreytt og verður því haldið áfram með dagskrá samkvæmt þingsköpum.