tollalög.
Virðulegi forseti. Ég rifja það upp hér að haustið 2016 vorum við um margt óvenjulegar aðstæður að afgreiða búvörusamninga og samhliða því tollasamninga. Boðað hafði verið til kosninga og ekki hafði tekist að skapa tilhlýðilega einingu um gerð búvörusamninga. Varð þingið því að leita málamiðlana og leiða til þess að skapa um þá meiri samstöðu og frið. Þess vegna lagði meiri hluti atvinnuveganefndar fram ítarlegt nefndarálit. Í því nefndaráliti eru tíundaðir allmargir liðir sem landbúnaðarráðherra átti að vinna að í kjölfarið. Við gengum meira að segja svo langt að við breyttum ákvæði búvörulaga þar sem skipun samráðshóps um búvörusamninga skyldi tryggð fyrir fyrstu endurskoðun. Síðan komu kosningar og ný ríkisstjórn tók í raun ekki við fyrr en í byrjun árs 2017. Það var því á borði þess landbúnaðarráðherra að framfylgja þeim atriðum sem meiri hluti atvinnnuveganefndar lagði til.
Ég spyr því framsögumann nefndarinnar hér, hv. þm. Njál Trausta Friðbertsson, um afdrif þessara punkta, vegna þess að fram kemur mjög skýrt í meirihlutaálitinu til hvers við vorum að leggja til hraðari innleiðingu á tollasamningnum og hvers við væntum á móti. Í framhaldsnefndarálitinu segir með beinum hætti að samhliða þeirri tilhliðrun að flýta gildistökuákvæðinu sé því beint til ráðherra að aðgangsheimildum að innri markaði Evrópusambandsins fyrir mjólkurafurðir verði hraðað eins og mögulegt sé.
Því spyr ég hv. framsögumann: Hvað liggur fyrir af formlegum gjörðum þáverandi landbúnaðarráðherra? Leitaði hann til utanríkisráðuneytisins varðandi það að leita eftir tilslökunum á móti hraðari innleiðingu?
Það er grundvallarmál vegna þess að öll atriðin sem eru í ályktun Alþingis um afgreiðslu þessa búvörusamninga eru jafn rétthá.
Það er ekki hægt að velja af hlaðborði hér. Það er ekki hægt að taka eitt atriði út og skilja öll hin eftir. Allt hangir það saman. Landbúnaðarráðherra sem þá sat, frá janúar og fram í september 2017, hv. þm. Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, bar því að framfylgja þessum atriðum. Það er hins vegar mjög þröng staða er líður fram á haustið og nánast ómögulegt fyrir landbúnaðarráðherra sem tekur við í desember 2017 vegna þess að þá hafði staðfesting Evrópuríkjanna um þennan tollasamning verið gjörð. Ferlinu með þeim glugga var þá raunverulega lokað.
Það er þess vegna sem hv. núverandi landbúnaðarráðherra ákveður það eftir tvo mánuði í starfi að leysa upp þann samráðshóp er skipaður hafði verið, og skrifa nýtt erindisbréf fyrir þann hóp. Ég get alveg upplýst það leyndarmál að ég er formaður þess hóps, annar af tveimur. Í því erindisbréfi eru tíunduð þau atriði sem Alþingi ályktaði um að skyldi vinna að fyrir fyrstu endurskoðun. Þann 7. febrúar 2018 setti hann í fyrsta sinn í farveg þau atriði sem Alþingi ályktaði um 2016.
Ég vil því beina því til nefndarinnar, af því að hv. framsögumaður kallaði í raun og veru málið aftur til nefndarinnar, að fá skorið úr eftirfarandi: Var unnið að vilja Alþingis í þessu máli? Hefur það starf sem Alþingi óskaði eftir farið fram?
Mörgum finnst framkvæmdarvaldið taka lítið mark á nefndarálitum hér í þinginu. Ég ætla að rifja það upp að hæstv. fyrrverandi fjármálaráðherra, Benedikt Jóhannesson, stóð mjög myndarlega að því þegar Alþingi ályktaði hér um fjármálaáætlun síðastliðið vor um ýmis atriði vegna fjármálaáætlunar og brást við því mjög skilmerkilega. Þannig tel ég að ráðherrar eigi að vinna. Ég tel þeir eigi að svara Alþingi þeim atriðum sem beint er til þeirra.
Ég vil bara fá að vita það fyrir síðustu umræðu þessa máls: Var unnið að vilja Alþingis?