149. löggjafarþing — 1. fundur,  11. sept. 2018.

tilkynning um stefnuræðu forsætisráðherra.

[16:03]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Stefnuræða forsætisráðherra fyrir hönd ríkisstjórnarinnar, samanber 62. gr. þingskapa, og umræður um hana verða á morgun, miðvikudaginn 12. september, og hefst umræðan kl. 19.30. Samkomulag er um fyrirkomulag umræðunnar. Umferðir verða þrjár, átta mínútur, fimm mínútur og fjórar mínútur, en forsætisráðherra hefur 16 mínútur til framsögu.