149. löggjafarþing — 2. fundur,  12. sept. 2018.

stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana.

[21:38]
Horfa

umhverfis- og auðlindaráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson):

Virðulegi forseti. Kæru landsmenn. Hvort sem við erum ung eða öldruð, hvar sem við búum og hversu ólík sem við innbyrðis kunnum að vera er eitt sem við eigum öll saman: Náttúru landsins. Náttúran hefur einstakt aðdráttarafl, hún er efnahagslega verðmæt og færir okkur gleði, gjaldeyristekjur og atvinnu. Hún er gulleggið okkar. Við Íslendingar eigum að vera leiðandi í umhverfismálum í heiminum. Við höfum þann valkost að sýna í verki hvað lítil og samrýnd þjóð getur gert. Höfum trú á okkur. Verðum fyrst ríkja til að ná að hætta að keyra grunnkerfin okkar áfram á mengandi og innfluttu eldsneyti. Hugsum út fyrir kassann til að taka á síhækkandi plastfjalli landsins og ósjálfbærri neyslu.

Kæru landsmenn. Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur hefur sett umhverfismál rækilega á oddinn. Loftslagsmálin eru og verða mikilvægasta viðfangsefni 21. aldarinnar. Ég man úr skóla hvernig sumir kennarar gáfu frest á skilum ritgerða og verkefna, og verð að viðurkenna að stundum kom það sér vel, meðan aðrir gerðu það ekki. Í loftslagsmálunum þýðir ekki að fá fresti. Það eru engir frestir. Hér á landi liggur nú fyrir fyrsta útgáfa að aðgerðaáætlun í loftslagsmálum og mörg brýn verkefni eru á leið í útfærslu í samvinnu við samfélagið. Tími aðgerða er runninn upp.

Önnur mikilvæg vegferð er hafin. Þverpólitísk nefnd með þingmönnum allra flokka á Alþingi og fulltrúum Sambands íslenskra sveitarfélaga vinnur nú að undirbúningi að stofnun þjóðgarðs á miðhálendi Íslands. Ég leyfi mér að fullyrða að aldrei hefur verið ráðist í jafn metnaðarfullt verkefni í náttúruvernd á Íslandi.

Mikil tækifæri felast í friðlýsingum fyrir efnahag og atvinnulíf landsbyggðanna með störfum og þjónustu við ferðamenn sem sækja svæðin heim. Í sáttmála ríkisstjórnarinnar er kveðið á um átak í friðlýsingum og í þessari viku fara fyrstu friðlýsingar svæða í verndarflokki rammaáætlunar frá 2013 í almenna kynningu. Stóraukið fjármagn hefur verið tryggt til uppbyggingar aðstöðu fyrir ferðamenn á friðlýstum svæðum á næstu árum og ný stofnun fyrir þjóðgarða og vernduð svæði er í undirbúningi. Hún mun efla náttúruvernd til muna og auka aðkomu sveitarfélaga og félagasamtaka að stjórnun náttúruverndarsvæða.

Herra forseti. Afstaða til umhverfismála á alþjóðavettvangi hefur gjörbreyst eins og heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun bera með sér. Umhverfismál eru ekki lengur álitin andstaða framfara, heldur undirstaða. Þau eru forsenda lífsgæða, friðar, blómlegs efnahagslífs og grunnþarfa samfélagsins. Þetta kallar á nýja nálgun og samvinnu þvert á málaflokka og pólitískar línur, rétt eins og kynning sjö ráðherra á aðgerðaáætlun í loftslagsmálum bar með sér. Þetta er mikilvæg breyting í íslenskri pólitík sem gaman er að fá að taka þátt í. — Góðar stundir.