stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana.
Herra forseti. Góðir áheyrendur. Íslenskt heilbrigðiskerfi er ekki fullkomið, það er ekki kerfi sem má ekki bæta, en samkvæmt öllum alþjóðlegum mælikvörðum og könnunum er það eitt það besta í heimi hvað varðar gæði þjónustu og aðgengi almennings. Þessi staðreynd ætti að vera íslenskum stjórnvöldum hvatning til að nýta skynsamlega þá fjármuni sem lagðir eru í heilbrigðismál og þróa þjónustuna áfram svo hún geti mætt sívaxandi og breytilegum kröfum nútímasamfélags. Þetta er áskorun sem vestrænar þjóðir standa almennt frammi fyrir.
Önnur risaáskorun, ekki síst fyrir fámennt land eins og Ísland, er að viðhalda þekkingu og nýsköpun innan heilbrigðisstétta. Það verður að segjast eins og er að það blikka eldrauð viðvörunarljós þegar litið er á samskipti heilbrigðisyfirvalda við ýmsa sjálfstætt starfandi aðila sem um áratugaskeið hafa sinnt fjölbreyttum verkefnum innan opinbera heilbrigðiskerfisins með sóma og verið ómetanlegur hluti af þessu kerfi sem allir Íslendingar reiða sig á.
Margoft hefur verið bent á að ekki sé vænlegt til árangurs að bæta fjármagni í heilbrigðiskerfið án þess að hafa skýra sýn á það hvernig því sé best varið. Það er kallað eftir tæknilegri, fjölbreyttri og einstaklingsmiðaðri þjónustu. Við þær aðstæður þarf einbeittan vilja til að komast hjá því að leggja áherslu á fjölbreytni og valfrelsi.
Í stefnuræðu hæstv. forsætisráðherra segir, með leyfi forseta:
„Heilbrigðisþjónustan er fyrirferðarmikil í nýju fjárlagafrumvarpi enda sá málaflokkur sem landsmenn hafa forgangsraðað efst á listann samkvæmt ýmsum könnunum.“
Með skýra mynd af helstu áskorunum ætti að vera hægt að álykta um forgangsröðun stjórnvalda. En raunin er önnur og raunverulegt markmið þeirrar vegferðar sem stjórnvöld eru á er í besta falli óljóst.
Sagt er: Við ætlum að efla opinbera kerfið.
Hið rétta er að opinbera heilbrigðiskerfið á Íslandi hefur um áratugaskeið verið sambland af ríkisrekstri og einkarekstri. Stjórnvöld stefna nú að því að skera niður einkarekstur opinbera geirans og steypa sem flesta í sama ríkisrekna mótið.
Sagt er: Það eru ekki til peningar í einkarekna hlutann.
Hið rétta er að það er ekki vilji til að fara í raunverulegan samanburð á kostnaði. Það liggur fyrir hvað opinber heilbrigðisþjónusta sem veitt er af sjálfstætt starfandi fagaðilum kostar. Ríkisrekni hlutinn er hins vegar kostnaðarlegt svarthol.
Sagt er í núgildandi siðareglum ráðherra frá desember 2017 að ráðherra skuli sýna ráðdeild við meðferð fjármuna hins opinbera.
Hið rétta er að ráðherra heilbrigðismála brýtur eigin siðareglur með útflutningi af íslenskum biðlistum til Svíþjóðar með þreföldum kostnaði á við það sem íslenskar læknastofur geta boðið upp á.
Sagt er: Einkarekstur takmarkar getu stjórnvalda til stefnumótunar.
Hið rétta er að stefnuleysið er einmitt algjört þegar fjármagnið fer allt í sömu ríkisreknu hítina án markmiðasetningar, kostnaðargreiningar og eftirlits.
Herra forseti. Hér ríkir samfélagsleg sátt um að verja mjög stórum hluta útgjalda þjóðarbúsins til heilbrigðismála. Það er ábyrgðarhluti af hinni sósíalísku afturhaldsstjórn að láta pólitíska rörsýn ráða för þegar kemur að því að ákvarða hvernig það fjármagn er nýtt.
Sósíalistinn og bandaríski öldungardeildarþingmaðurinn Bernie Sanders orðaði þetta ágætlega, með leyfi forseta:
„Markmið raunverulegra endurbóta í heilbrigðisþjónustu verður að vera að nýta þá fjármuni sem í boði eru á sem hagkvæmastan máta til að tryggja gæðaþjónustu og til að tryggja almennt og jafnt aðgengi að þjónustunni.“
Við í Viðreisn tökum heils hugar undir þessi orð og óskum hæstv. heilbrigðisráðherra velfarnaðar og ríkisstjórninni allri í því að feta hér réttu brautina, þjóðinni til hagsbóta.