fjárlög 2019.
Herra forseti. Það virðist samt sem áður vera svo varðandi stefnu hv. þingmanns og flokks hans, og væntanlega Viðreisnar, að ekki hefur verið stemning í samfélaginu til að ganga í Evrópusambandið og taka upp annan gjaldmiðil. Kannski breytist það. Kannski þurfum við að gera aðrar kannanir, ekki veit ég það, en fram til þessa hefur 80% þjóðarinnar ekki verið stödd þar.
Hvað varðar framlög til heilbrigðismála trúi ég ekki öðru en að hv. þingmaður sé mér sammála um að tæplega 17 milljarðar á síðasta ári, þ.e. tæplega 9% aukning, og núna tæplega 13 milljarðar sé eitthvað sem við getum verið afskaplega ánægð með. Ég held að við getum alltaf gert betur í öllum málaflokkum. Það er eðli stofnana að óska eftir auknum fjármunum til rekstursins. Ég held að verkefni þeirra séu þannig að þau geti alltaf gert betur og það sé eitthvað sem þeim ber að gera til að geta tekið stofnanir sínar áfram og lengra og allt það.
Við erum auðvitað að hefja stórsókn sem felst í því að byggja Landspítalann í haust, eins og hefur komið fram. Við erum að fullfjármagna geðheilbrigðisáætlun, sem hefur verið mikið kallað eftir í samfélaginu eins og hv. þingmaður þekkir vel. Við styrkjum grunnþjónustuna, heilsugæsluna, sem hlýtur að verða til þess að þörfin fyrir sérhæfða sjúkrahúsþjónustu minnki. Ég vona að ef að við getum séð til þess að grunnþjónustan sé í lagi og fólk sæki þangað inn og þjónustan verði fólki að kostnaðarlausu, með því að við stígum áfram þau skref að minnka gjaldtöku í heilbrigðiskerfinu, þá sé það til marks um að við getum lækkað framlög, a.m.k. að þau þurfi ekki að vera eins há og ef heilsugæslan verður ekki styrkt, eins og hér er lagt til að verði gert.