fjárlög 2019.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Birgi Þórarinssyni svarið og fyrir að útskýra mál sitt. Við getum verið sammála um að hagræðing í ríkisrekstri, agi og festa, eru mikilvæg atriði, enda eru grunngildi laga um opinber fjármál þess efnis. Jafnframt er mikilvægt að við hugum að sjálfbærni til lengri tíma þegar við horfum á aukningu í þessum rammasettu útgjöldum.
Hv. þingmaður nefnir hér nokkra málaflokka og það er hárrétt, við eigum að horfa mjög vel á öll þessi 34 málefnasvið og svo yfir 100 málaflokka.
Staðreyndin er þessi: Við erum hér fyrst og fremst að setja aukna fjármuni í okkar stóru kerfi sem taka mikið til sín. Veigamestu málefnaflokkar að þessu leyti eru auðvitað í velferðarráðuneytinu þar sem heilbrigðismálin, félags-, húsnæðis- og tryggingamál eru. Hér er verið að setja mjög aukna fjármuni inn á þessi málefnasvið. Heilbrigðismálin taka mjög mikið til sín sem og samgöngumál og svo mennta- og menningarmál. Þarna erum við komin í 80% af útgjöldunum.
Við verðum líka að huga að því að laun hafa hækkað verulega í landinu. Bara síðasta áratuginn hafa laun hækkað og mest á síðustu fjórum árum og kaupmáttur hefur aukist gríðarlega. Launaútgjöld í þessari mannaflsfreku þjónustu hefur hækkað gríðarlega á sama tíma. Það verðum við líka að hafa í huga þegar við horfum á fjárlagafrumvarpið sem við ræðum hér, þ.e. hvað við erum í raun og veru að kljást við.