fjárlög 2019.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Hér er spurt hvernig sá sem hér stendur sjái fyrir sér stuðning við uppbyggingu og nýsköpun í landbúnaði. Ég sé það með ýmsum hætti. Það er rétt sem hv. þingmaður nefnir að það er niðurskurður eða lækkun á framlögum í þennan þátt í fjárlögunum sem stafar af því að framlög til Landbúnaðarháskóla Íslands, sem heyrir raunar undir annað ráðuneyti en mitt, lækka vegna þess að felld eru niður tímabundin framlög sem komu inn í fjárlög síðasta árs og þingmaðurinn þekkir. Það eru tækifæri til nýsköpunar í landbúnaðarmálum, en að minni hyggju koma þau ekki og við getum ekki gripið þau nægilega vel í óbreyttu umhverfi bænda.
Meginatriðið sem við erum að ræða t.d. núna við sauðfjárbændur, í viðræðum við þá um endurnýjun starfsskilyrða þeirra, er að gefa þeim kost á að hafa aukið vægi og frelsi til þess að nýta, eins og ég segi sjálfur á fundum með þeim, þau réttindi sem þeir hafa samkvæmt núgildandi sauðfjársamningi til að spila úr með öðrum hætti en gert er í dag. Ég tel að það sé fullt af færum þarna. Ég skynja mikinn kraft hjá sauðfjárbændum og vilja til þess að geta unnið úr þeim fjárheimildum sem við erum þó með bundnar þarna inni með öðrum hætti en við erum að gera í dag. Það er hins vegar vandasamt að vinna úr því. Við sitjum yfir því þessa dagana, fulltrúar mínir, í viðræðum við bændur.
Ég vil sömuleiðis nefna tækifæri sem bændum mun gefast í tengslum við aðgerðaáætlun í loftslagsmálum. Þar eru tækifæri sömuleiðis. Sem betur fer tel ég að bændur landsins séu hvað lengst komnir í hugsuninni í þá veru að leggja meira til loftslagsmála en margar aðrar starfsgreinar sem við sjáum í umræðum um breytingar í vinnu landsins á sviði loftslagsmála.