fjárlög 2019.
Virðulegi forseti. Hv. þingmaður segir að ekki fari mikið fyrir tillögum um nýsköpun og annað í fjárlagafrumvarpinu. Það kann vel að vera að svo sé ekki í tölum, ekki í fjárhæðum, en í fjárlagafrumvarpinu eru engu að síður nefnd ákveðin verkefni sem gefa full færi á þessum sviðum, t.d. möguleg samþætting sjóða á þessu sviði, AVS-sjóðsins og Framleiðnisjóðs landbúnaðarins, þar sem við myndum leiða saman landbúnað og sjávarútveg og taka það besta frá báðum hliðum til þess að styrkja matvælaframleiðsluna. Ég vil sömuleiðis nefna það sem ég gat um í framsöguræðu minni varðandi matvælastefnu fyrir Ísland, þ.e. að við mörkum okkur stefnu til lengri tíma sem matvælaframleiðsluland, sem hefur ekki verið gert áður. Það tengist öllum þáttum hvors tveggja, landbúnaðar og sjávarútvegs.
Ég vil sömuleiðis nefna stefnumótun á sviði opinberra innkaupa þar sem innlend framleiðsla ætti að hafa mjög mikla möguleika o.s.frv., ef tekið væri tillit til allra þátta varðandi kolefnisspor.
Ég nefndi áðan hluti varðandi búvörusamningana. Þar undir heyrir m.a. garðyrkja. Það setur hins vegar þessum málaflokki ákveðnar skorður að við erum með búvörusamning sem tók gildi 1. janúar 2017, þ.e. fyrir rúmu einu og hálfu ári. Hann gildir í tíu ár, til 2026. Ef við viljum breyta t.d. áherslum varðandi garðyrkjuna verðum við að efna til þess samtals og við endurskoðun þess hluta búvörusamninganna. En fyrirmæli mín til endurskoðunarhópanna eru þau að við vinnum út frá þeim fjárhagsramma sem samningunum er markaður í fjárlögum og fjármálaáætlun. Það er kannski þess vegna sem ekki ber mikið á tilraun til endurnýjunar eða nýsköpunar. En ég get fullvissað hv. þingmann um að sú vinna er á fullu gasi, eins og stundum er sagt.