fjárlög 2019.
Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra fyrir þessa yfirferð. Ég ætla að drepa á atriðum úr sjávarútvegsmálunum í frumvarpinu varðandi fiskeldið. Ráðherra kom inn á það áðan og þau auknu umsvif sem sannarlega hafa verið í fiskeldismálum. Nú er á leiðinni í atvinnuveganefnd frumvarp um fiskeldi. Ég veit ekki hvort það er óbreytt frá því í fyrra, en ég tók eftir því í allri þeirri vinnu sem var í atvinnuveganefnd um þetta mál síðasta vetur að það flæktist meira eftir því sem við fengum fleiri umsagnir og fleiri gesti. En eitt aðalmálið sem ég hnaut um og menn lögðu þunga áherslu á var áhættumat Hafró, sérstaklega í Ísafjarðardjúpi, sem mörgum þótti ekki vel unnið og vildu fá breytingar á.
Mig langar að spyrja ráðherrann: Megum við eiga von á breytingum í frumvarpinu sem kemur í haust?
Svo er það auðlindagjaldið, sem ég vil kalla auðlindagjöld, í sjávarútvegi. Það er staðreynd að útgerðin er alltaf að færast á færri hendur, búin að fara úr um 950 útgerðum árið 2005 niður í 380 í dag. Forsætisráðherra talaði um að hún vildi hafa afkomutengd auðlindagjöld áfram. Það er alveg á hreinu að það er ekki gott að afkomutengja litlar og meðalstórar útgerðir. Eins og þetta er í dag er þetta tekið úr stóru púllíunni. (Forseti hringir.) Megum við eiga von á því að tekið verði meira tillit til lítilla og meðalstórra útgerða í því frumvarpi sem von er á um auðlindagjöld í haust, vegna þess að fleiri og fleiri útgerðir stefna í þrot og selja nú frá sér fyrirtækin?