fjárlög 2019.
Virðulegi forseti. Ég þakka andsvarið. Fyrst varðandi fiskeldið er það rétt að frumvarpið um fiskeldið kom í vor og dagaði uppi í nefndinni af ýmsum ástæðum. Ég held raunar að þegar frumvarpið kom fram hafi allir hagsmunahópar farið á stjá sem telja sig á einhvern hátt tengda þessu viðfangsefni, fiskeldinu, og komið sjónarmiðum sínum á framfæri, m.a. við nefndarmenn. Áherslurnar eru svo breiðar. Þær eru svo miklar og þungar og það er mikil sannfæring hjá öllum sem þessu tengjast að erfitt er fyrir nefndina að vinna úr slíkum athugasemdum á þeim knappa tíma sem henni var skammtaður í vor. Það kann að vera skýringin á því hvernig fór með það mál.
Ég reikna með því að koma fram með frumvarp á þessu sviði núna í nóvember. Það verður eitthvað breytt. Það er alveg ljóst að við þurfum að takast eitthvað á við það áhættumat sem þarna var boðað og reyna að skoða með hvaða hætti við getum nálgast þau sjónarmið sem þar eru uppi. Það verður dálítið snúið, en það er hins vegar algjört grundvallaratriði í mínum huga að allt sem við munum gera á þessu sviði verðum við að byggja á grunni vísindalegrar ráðgjafar og rannsókna. Það er atriði sem ég mun aldrei hvika frá meðan ég ber ábyrgð á þessum málaflokki.
Veiðigjöldin, afkomutenging eða litlar og meðalstórar útgerðir. Ég svara því með þeim hætti að ég legg fram frumvarp vonandi öðrum hvorum megin við mánaðamót, helst fyrir mánaðamót. Ég vænti þess (Forseti hringir.) að um það muni verða gríðarlega góðar og miklar og málefnalegar umræður, eins og jafnan er um sérstaka skatta á útgerð í landinu. Ég efast ekki um það eitt andartak.