fjárlög 2019.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. sjávarútvegsráðherra svarið. Þótt ég tali um að við eigum að efla og styrkja laxeldi vil ég byrja á því að þrykkja því öllu upp á land einn, tveir og þrír.
Hæstv. sjávarútvegsráðherra talar um að hér séu grynnri og lygnari firðir en það þýðir að mengunarhættan er enn meiri og enn frekari ástæða til að huga að því þegar slátrað er úr ákveðnum kerjum til að setja ný seiði að haldið sé það regluverk sem þegar er byggt utan um laxeldið. Það eiga a.m.k. að líða sex til átta mánuðir en ekki þrír mánuðir eins og Arnarlax framkvæmdi í vor. Þar var tæmt úr eldiskvíunum í mars og búið að breyta um og setja ný seiði í staðinn í júní. Fyrirtækið fékk pínulitlar ákúrur fyrir það eða ofanígjöf en síðan ekki neitt meira.
Þegar maður hugsar um vernd náttúrunnar spyr maður sig hvort ekki verði að senda skýr skilaboð til fyrirtækja um að fylgja lágmarksregluverki í þeim efnum. Það er dauðans alvara ef við ætlum að eyðileggja árnar okkar og þann vöxt sem við höfum í sambandi við villta laxinn.
Það er líka alvarlegt ef við ætlum að koma í veg fyrir að brothættar byggðir geti haldið áfram að byggja upp laxeldi sitt. Við verðum að gera það í fullri sátt við náttúruna. Hvað með það þótt það kosti nokkrum krónum meira? Þeir segja að það sé tvisvar til þrisvar sinnum dýrara að setja þetta upp á land en þeir græða bara á því vegna þess að ekki þurfa þeir að borga eins mikið fyrir leyfi til að fá að vera með laxeldi hér eins og þeir þyrftu að gera í Noregi, þangað sem þeir ætla að koma því í kauphöllina.
Að lokum ein spurning til hæstv. ráðherra, sem einnig er landbúnaðarráðherra: Hvar er kjötfjallið sem var hérna í fyrra þegar átti að slagta 20% af öllum búfjárstofni sauðfjárbænda? Ég veit að hæstv. ráðherra var heilbrigðisráðherra í þeirri ríkisstjórn en einhvern veginn virðist þetta kjötfjall hafa gufað upp og maður gat ekki fengið eina einustu kótelettu í heilan mánuð.