149. löggjafarþing — 4. fundur,  14. sept. 2018.

fjárlög 2019.

1. mál
[13:56]
Horfa

Þorsteinn Víglundsson (V):

Forseti. Það er mjög áhugavert að skoða þá málaflokka sem hæstv. ráðherra fer fyrir. Í sjávarútveginn leggjum við um 6,5 milljarða í eina stærstu útflutningsatvinnugrein okkar á ári, fyrst og fremst til rannsókna og vísindastyrkja. Við bárum gæfu til þess fyrir rúmum þremur áratugum að breyta starfsskilyrðum rekstrarumhverfis þeirra greina með þeim hætti að í dag kýtum við kannski fyrst og fremst um hvernig eigi að skattleggja hana. Verðmætasköpun hefur verið stóraukin, nýtingin hefur stóraukist og greinin sjálfbær í alla staði.

En þegar kemur hins vegar að landbúnaði virðumst við hafa fest í tíma. Án þess að dregið sé úr mikilvægi greinarinnar erum við þar með atvinnugrein sem átt hefur á brattann að sækja á undanförnum áratugum, stöðugt minnkandi vægi, fækkandi hvað varðar fjölda starfsmanna o.s.frv. sem starfa í greininni. Hún telst varla sjálfbær því að hún þrífst ekki án verulegs ríkisstuðnings.

Mér leikur forvitni á að vita sýn hæstv. landbúnaðarráðherra: Hvernig höldum við eiginlega áfram á þessari braut? Það eru fá ríki sem eru með hærri verndartolla á landbúnaðarafurðir en við, alla vega í vestrænum heimi. Það eru fá ríki sem styðja með beinum hætti landbúnaðarframleiðslu í hærra hlutfalli. Árangurinn fyrir bændur er ekki sjáanlegur. Bændur geta ekki státað sig af góðri afkomu í þessu rekstrarumhverfi, sem hlýtur að vera gríðarlega mikilvægt fyrir okkur þegar við horfum til byggðaþróunar í landinu til lengri tíma litið. Ávinningur neytenda er enginn og raunar verri en enginn því að matvælaverð er óvíða hærra. Sennilega myndi fjögurra manna fjölskylda spara um 70–80 þús. kr. í mánaðarlegum útgjöldum sínum ef matvælaverð væri hér á pari við hin Norðurlöndin. Það er fyrst og fremst innlenda landbúnaðarvaran sem skýrir þennan mikla mun. Neytendur hafa því ekki notið góðs af miklum stuðningi okkar við landbúnað.

Ég spyr hæstv. landbúnaðarráðherra: Hvernig í ósköpunum brjótumst við út úr þeim vítahring sem við erum í þegar kemur að landbúnaðarframleiðslu í landinu?