fjárlög 2019.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni spurninguna. Stutta svarið er í rauninni neitun. Ég held að við brjótumst ekki út úr þessum vítahring eins og hv. þingmaður kallar í gegnum fjárlög íslenska ríkisins sem við erum að ræða hérna. Spurningarnar sem hv. þingmaður kemur með eru góðar og gildar. Ég vil gjarnan taka þá umræðu við hv. þingmann. Þær eru meira utan fjárlagavinnunnar sjálfrar, en ég skal glaður koma aðeins inn á það.
Ég sé það gerast í gegnum samninga sem við erum að byrja að vinna að. Ég minni hv. þingmann á það sem ég hef áður sagt í umræðunni nú í dag að við erum í viðræðum við sauðfjárbændur um að gera breytingar á því með hvaða hætti stuðningsgreiðslurnar virka á grundvelli aðlögunarsamninga. Ég leyfi mér líka að fullyrða að umræðan um landbúnað eins og hér kemur fram er ekki alls kostar rétt.
Ég bendi á t.d. gríðarlegar breytingar sem mjólkurframleiðendur, mjólkurbændur, hafa gengið í gegnum á síðustu árum. Ég fullyrði að framleiðsla þeirra og sá atvinnurekstur sem mjólkurgeirinn er hjá bændum á Íslandi hefur gert mjög góða hluti, og fyrst hv. þingmaður nefndi sjávarútveginn sem dæmi voru sóttar fyrirmyndir þar til sjávarútvegsins. Við verðum líka þegar við erum að ræða um landbúnaðarmálin að muna það sem vel er gert.
Og garðyrkjan er sömuleiðis að gera góða hluti. Við erum komin í þá stöðu þrátt fyrir gengið eins og það er að garðyrkjubændur á Íslandi eru farnir að flytja út framleiðslu sína. Þannig að þetta er nú ekki allt á leið til fjandans, eins og stundum mætti draga ályktanir um.