149. löggjafarþing — 4. fundur,  14. sept. 2018.

fjárlög 2019.

1. mál
[14:39]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra fyrir yfirferð hans á þeim málefnasviðum sem honum tilheyra.

Í liðinni viku kynntu sjö ráðherrar metnaðarfull áform í loftslagsmálum. Rétt eins og hæstv. samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra sagði á þeirri kynningu eiga loftslagsbreytingar sér engin landamæri. Loftslagsbreytingar birtast okkur með ógnarþunga og við erum minnt á þær á hverjum degi víða um heim.

Vegna hinnar miklu áherslu stjórnarinnar á loftslagsmál rýndi ég aftur í kafla fjárlagafrumvarpsins um samgöngur á vegum í leit að aðgerðum gegn kolefnislosun vegna einkabílanotkunar landsmanna. Það bara hlaut að birtast í kafla þessa ráðuneytis samgangna, enda er mengandi einkabíllinn sá sem veldur hvað mestri kolefnislosun hér á landi vegna skorts okkar á alvörualmenningssamgöngum. Hvað sé ég? Nei, styrkir til almenningssamgangna hækka um 150 millj. kr., sem svo skemmtilega vill til að er sama fjárhæð og ríkisstjórnin ákvað að auka í stuðning við sig sjálfa í formi aðstoðarmanna. 150 millj. kr. aukning til almenningssamgangna um allt Ísland. Í fjárlagafrumvarpinu er sagt að þetta fjármagn eigi m.a. að nota vegna núgildandi samninga um áætlunarakstur á landsbyggðinni.

Ekkert er fjallað um fjármagn til nýframkvæmda í almenningssamgöngum og ekkert um langstærsta byggðakjarna Íslands, höfuðborgarsvæðið, hvar 70% landsmanna búa, fyrir utan alla ferðamennina. Ekkert um að stórefla almenningssamgöngur til að sýna að stjórninni sé alvara með stórsókn í loftslagsmálum. Höfuðborgarsvæðið er ekki það stórt. Við eigum auðveldlega að geta gert kraftaverk þar.

Þess vegna spyr ég hæstv. samgönguráðherra: Hvenær hyggst ríkisstjórnin taka þátt í þessu gríðarmikla verkefni sem varðar framtíð allra jarðarbúa?