fjárlög 2019.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Helgu Völu Helgadóttur fyrir að vekja athygli á þessum mikilvægu málum og taka hér til umræðu aðgerðir og aðgerðapakka ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum. Eins og hv. þingmaður veit sjálfsagt vel var á kynningunni kynnt að til orkuskipta í samgöngum er umhverfisráðherra með um 1,5 milljarða kr.
Það er rétt að hækkunin til almenningssamgangna fer úr 3,2 milljörðum á yfirstandandi ári yfir í 3,4 milljarða. Ég held að þetta sé nákvæmlega 161 millj. kr., alla vega samkvæmt gögnum sem ég er með hér. Þar er fyrst og fremst horft til þess að þetta fimm ára verkefni sem hefur verið í almenningssamgöngum um allt land sem kannski fór svolítið brösuglega af stað hefur engu að síður skilað þeim árangri að fjöldi þeirra sem hefur nýtt sér almenningssamgöngur á landinu hefur þrefaldast. Auðvitað er þetta ekki hátt hlutfall af þeim sem fara um þá vegi, en fer úr 1% í 3% ef ég man rétt. Því má halda fram að verkefnið hafi gengið býsna vel. Þess vegna þarf að endurmóta það. Það er það sem við erum að gera í ráðuneytinu og vinna að stuðningi við slíkt verkefni.
Engu að síður er það þannig að almenningssamgöngur heyra líka undir sveitarfélögin. Í samstarfi við sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu var á síðasta ári unnið með Vegagerðinni og ráðuneytinu að því að koma saman pakka sem gæti litið þannig út að þar væru framkvæmdir upp á rúma 80 milljarða, 85 milljarða, sem tengjast annars vegar almenningssamgöngum á höfuðborgarsvæðinu og hins vegar nauðsynlegum framkvæmdum sem þarf að gera á stofnkerfinu. Sumt hefur samlegðaráhrif, þ.e. sumar framkvæmdirnar nýtast hvoru tveggja. Í samgönguáætlun erum við að reyna að svara þessum hluta. Síðan þurfum við að taka upp samtal (Forseti hringir.) við Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu til að ljúka hinum þættinum.