149. löggjafarþing — 4. fundur,  14. sept. 2018.

fjárlög 2019.

1. mál
[14:57]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra fyrir innlegg hans hér í dag. Ég verð að segja, líklega eins og flestir, að ég bíð spennt eftir því að sjá títtnefnda samgönguáætlun. Það er auðvitað margt þar undir sem við þingmenn tökumst á um og höfum gert í gegnum tíðina, en ég held að við getum þó alltaf gert betur, ég hef ævinlega sagt það, og alltaf vantar peninga alls staðar og ekki síst í þennan risavaxna málaflokk sem samgönguhlutinn er. Þá er samt sem áður ríflega 12% hækkun á milli ára sem hlýtur að teljast nokkuð gott. Ég er því þokkalega ánægð með þá 42 milljarða sem eru undir í þessu frumvarpi.

Líka var viðbót sett í nýframkvæmdir og hið brýna viðhald sem hér er undir sem ég held að mjög margir hafi orðið varir við þegar þeir fóru um landið í sumar, hafi þeir gert það. Alls staðar var eitthvað um að vera í vegalagningu.

Mig langar líka að fagna aukinni vetrarþjónustu. Ég vona að það sé ekki bara í hálkuvörnum á höfuðborgarsvæðinu þó að það sé afar brýnt því að hér er auðvitað gríðarlega mikill umferðarþungi. En við þekkjum það líka sem búum í dreifðum byggðum og þurfum yfir stór svæði að fara að þar þarf og hefur þurft góða vetrarþjónustu, og hefur hún reyndar verið aukin að einhverju leyti.

Mig langar aðeins að koma inn í umræðu um almenningssamgöngurnar og spyrja hæstv. ráðherra út í þær, en þetta er afar stuttur tími. Það eru uppi efasemdir um að nýju lögin um farþegaflutninga og farmflutninga tryggi nægjanlega möguleika landshlutanna til reksturs almenningssamgangna. Mig langar að spyrja ráðherrann hvort hann telji að þau nái utan um það. Ef svo er ekki, hvort og hvað við þurfum þá að gera til að svo megi vera. Eins og við þekkjum eru lagðir til fjármunir í almenningssamgöngur til að styðja við þær, t.d. í mínu kjördæmi þar sem hefur (Forseti hringir.) verið mikill halli undanfarin ár. En fyrst og fremst er þessi spurning um hið lagalega umhverfi.