fjárlög 2019.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina um almenningssamgöngurnar og lagalega grunninn. Þetta er nokkuð sem við þurfum auðvitað að skoða. Það sem ég kom inn á í fyrri ræðu við annan hv. þingmann var að þetta verkefni, almenningssamgöngur á landsbyggðinni, er ekki margra ára og það haltraði af stað m.a. vegna þess að lagagrunnurinn í kringum það var ekki í lagi. Því miður urðu deilur um allt of margar akstursleiðir milli annars vegar sveitarfélaganna, landshlutanna, sem tóku að sér þessar almenningssamgöngur og hins vegar einstakra fyrirtækja sem voru að keyra á þeim leiðum sem gáfu sem mest af sér og tóku fyrir vikið kannski svolítið undan þessum almenningssamgöngum.
Ég hef staðið í þeirri meiningu að lögin væru orðin nægilega skýr, en það er ekki langt síðan þau tóku gildi. Ég veit að margir hafa verið svolítið hræddir við að beita sér innan þeirra vegna þeirra tíma sem voru fyrir þá lagasetningu. Ég held að það væri mjög skynsamlegt bæði fyrir okkur í ráðuneytinu sem og þingnefndina að leggjast yfir það og fá skýrari sýn á það.
Varðandi það sem hv. þingmaður nefndi með framkvæmdirnar held ég að fullyrða megi að aldrei fyrr hafi verið eins mikið framkvæmt í viðhaldi í vegakerfinu og síðustu mánuðina enda bættum við 4.000 milljónum ofan á 8 milljarða. Þess hefur einfaldlega séð stað á öllum vegum í öllum landshlutum enda veitti ekkert af. Margir vegir voru gjörónýtir. Það er allt önnur staða uppi en fyrir þann tíma. Á sama tíma jukum við einnig þjónustuna á síðastliðnu ári, vetrarþjónustu, ekki bara á höfuðborgarsvæðinu heldur líka úti um land, bæði fyrir ferðaþjónustuna (Forseti hringir.) og líka innan vinnu- og skólasóknarsvæða. Aukningin á næsta ári er um 708 milljónir í þann lið þannig að við verðum og munum (Forseti hringir.) halda áfram á þeirri braut.