149. löggjafarþing — 4. fundur,  14. sept. 2018.

fjárlög 2019.

1. mál
[15:04]
Horfa

samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Herra forseti. Þessi nefnd sem hefur verið að skoða innanlandsflugið þar sem hún hefur m.a. verið að skoða útfærsluna á skosku leiðinni er ekki búin að skila af sér enda tengist þetta að nokkru leyti því sem við ræddum um, við hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson, sem er reyndar formaður þeirrar nefndar, samráðshópsins. Það tengist auðvitað öðrum stuðningi ríkisins við flugið, sem sagt almenningsþjónustusamningnum og hvernig við erum að reyna að niðurgreiða eða greiða með uppbyggingunni á innanlandsflugvöllum. Þar erum við að bæta í. Við bættum verulega í í fyrra, um 370 milljónum, erum að bæta sambærilegri upphæð við aftur í ár. Stuðningurinn er þá að verða um 2,5 milljarðar. Í skosku leiðinni, þeirri útfærslu sem var kynnt hér á haustdögum 2017, þess hóps sem hafði kannað það þá, voru menn að tala um að það gætu verið á bilinu 600–800 milljónir. Auðvitað er möguleiki að stokka upp þetta stuðningskerfi þannig að þeir fjármunir kæmu í það minnsta að hluta til úr þessum 2,5 milljörðum, vegna þess að staðreyndin er sú að þessir 2,5 milljarðar okkar hafa ekki skilað sér í fjölgun farþega eða í verulega lægri flugfargjöldum né því að aðrir hafi nýtt sér þetta.

Að vísu má benda á, það er það sem kom fram hjá Viðskiptaráði um daginn, að innanlandsflug hafi hlutfallslega aldrei verið jafn ódýrt, var það þó borið saman við kaupmátt launa. En það sem skekkir myndina er að verð á flugi milli Íslands og annarra landa er orðið svo fáránlega lágt, hlutfallslega, að okkur finnist þetta dýrt en ef það er borið saman í raun er það það ekki. Engu að síður er það staðreynd að það kostar 30.000–40.000 kr., jafnvel meira, (Forseti hringir.) allt að 200.000 kr. fyrir fjögurra manna fjölskyldu, að fljúga að austan. Það er augljóslega ekki líklegt til árangurs og þess vegna verðum við að halda áfram að vinna á þessum nótum, en það er ekki búið.