149. löggjafarþing — 4. fundur,  14. sept. 2018.

fjárlög 2019.

1. mál
[15:21]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V):

Herra forseti. Hér lætur nærri að vísvitandi hafi verið snúið út úr orðum mínum. Ég ætla að endurtaka: Hvar er forgangsröðun til nauðsynlegra samgöngubóta á höfuðborgarsvæðinu? Af hverju er höfuðborgarsvæðið ekki ofarlega á forgangslista? Þetta er ekki sérstaklega flókin spurning. Kannski kemur svarið á eftir.

Ég er með aðra spurningu sem tengist landsbyggðinni. Samkvæmt fjárlögum er áætlað að 25 milljörðum verði varið til vegagerðar. Það eru ýmis góð mál í aðgerðaáætluninni á borð við framkvæmd Dýrafjarðarganga, uppbyggingu Dettifossvegar og aukna áherslu á uppbyggingu hjólastíga. En það grípur augað að ekki hefur enn verið tekin ákvörðun um lagningu Vestfjarðavegar um Gufudalssveit sem heimamenn í Reykhólahreppi hafa beðið eftir í hátt á annan áratug. Í fjárlögunum segir, með leyfi forseta:

„… og veg um Gufudalssveit ef niðurstaða fæst.“

Nú hefur sveitarstjórn Reykhólahrepps fest veginn sem Vegagerðin telur vænstan inn í aðalskipulag sitt og skoðanakönnun Gallups sýnir að ríkur meiri hluti íbúa, tæp 90%, er sammála. Er það ekki niðurstaða, hæstv. ráðherra?

Eins og við þekkjum er bitbeinið Teigsskógur. Til að koma til móts við umhverfissjónarmið hefur Vegagerðin breytt upphaflegri tillögu að veglínu. Núna myndu framkvæmdir, ef af yrði, skerða um 1,1% af skóginum og efnistaka ekki ganga á skóglendið. Það er með öðrum orðum búið að endurskipuleggja framkvæmdirnar til að lágmarka umhverfisáhrifin.

Ég spyr aftur: Hvað tefur?

Ef það er hæstv. ráðherra hjálp í baráttu sinni fyrir mannsæmandi samgöngum fyrir Vestfirðinga get ég upplýst að ég mun leggja fram breytingartillögu við samgönguáætlun — og ég ætla að leyfa mér að nefna samgönguáætlun hér — þegar hún kemur fram, verði þess þörf. Í þeirri breytingartillögu verður gert ráð fyrir að farið verði í þessar framkvæmdir hið fyrsta og ég treysti því og þykist vita að þingheimur sé mér sammála í því.

Ég spyr enn og aftur: Eftir hverju eru Vestfirðingar látnir bíða, hæstv. ráðherra? Af hverju og eftir hverju?

Ég óska svara en ekki útúrsnúninga.