fjárlög 2019.
Virðulegur forseti. Nú verður sá sem hér stendur að viðurkenna, kannski ólíkt þingmanninum, að hann er ekki sérfræðingur í tæknilausnum þeim sem þarna hafa verið kynntar til sögunnar. Ég get þar af leiðandi ekki sagt til um það hvernig þetta á að virka og hvort þetta muni virka. En ég get vitnað til sérfræðinganna sem hafa hannað búnaðinn og verið að þróa hann. Við þekkjum það, bæði ég og hv. þingmaður, að sandhafnir víða um heim taka tíma. Við þekkjum það líka hér á Íslandi að þær hafa tekið tíma í þróun áður en þær verða nægilega vel þekktar. Landeyjahöfn hefur svo sannarlega ekki farið varhluta af því að fá sinn sand; reyndar líka náttúruhamfarir á borð við Eyjafjallagos og mikinn sandburð í kjölfar þess. Auðvitað vænta þeir sem um málið hafa vélað og hannað búnaðinn, sérfræðingarnir, þess að hann muni virka, annars væru menn ekki að fara þessa leið.
Varðandi þá spurningu hvort hæstv. ráðherra hafi beitt sér sérstaklega í málinu hefur þessi ákvörðun verið mjög langan tíma á leiðinni; löngu áður en hæstv. ráðherra settist í ráðherrastól. Þessi hönnun hefur tekið miklu lengri tíma. Menn hafa verið að þróa þetta í mjög langan tíma. Eins og kom fram hjá hv. þingmanni stóð til að bjóða þetta út og var gert, en ekki komu nægilega góð tilboð, þannig að þetta hefur verið tilbúið lengi. Fjárveitingin hefur líka verið tilbúin í þetta verkefni og auðvitað vonumst við öll eftir því að í þróun Landeyjahafnar, þar á meðal í þessum búnaði, nýtist þeir til þess að gera höfnina öruggari og betri svo hægt sé að sigla oftar þangað inn.
Ég get því miður ekki svarað þingmanninum betur hvað þetta varðar. Ég hef ekki tæknilega þekkingu á þessu sviði.