149. löggjafarþing — 4. fundur,  14. sept. 2018.

fjárlög 2019.

1. mál
[15:35]
Horfa

Líneik Anna Sævarsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Hér ræðum við málefnasvið sem heyra undir samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið við 1. umr. um fjárlög ársins 2019. Það er mikið fagnaðarefni að sjá aukningu í málaflokkum sem þar heyra undir, í byggðamálum, samgöngumálum og fjarskiptamálum, sem skipta okkur öll miklu máli, en þessir málaflokkar hafa setið á hakanum tímabundið undanfarin ár.

Þarna eru mörg mikilvæg mál sem mætti nefna og hafa verið nefnd í umræðunni. Sérstaklega finnst mér ánægjulegt að sjá að fjárlögin fylgja vel eftir byggðaáætlun sem hér var samþykkt síðastliðið vor. En í málaflokknum Byggðamál er talað um flutningsjöfnun. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra út í vinnu sem er fram undan á því sviði, annars vegar varðandi jöfnun á eldsneytiskostnaði á varaflugvöllum fyrir millilandaflug og hins vegar varðandi svæðisbundna flutningsjöfnun, sem ég tel mikilvægan lið og ákveðna undirstöðu fyrir nýsköpun í framleiðslu í dreifbýli og sérstaklega strjálbýlli hluta dreifbýlisins. Það er ákveðin flutningsjöfnun innbyggð t.d. í starfsskilyrði afurðastöðva í mjólkurframleiðslu, en ekki á það sama við þegar kemur að grænmetisframleiðendum eða þeim sem selja skógarafurðir, sem nú er ný framleiðsla bænda. Ég tel mikilvægt að þarna fari fram ákveðin endurskoðun akkúrat í tengslum við vinnuna við nýja byggðaáætlun.