fjárlög 2019.
Herra forseti. Síðastliðinn miðvikudag kynnti hæstv. mennta- og menningarmálaráðherra á blaðamannafundi hugmyndir sínar um stuðning ríkisins við einkarekna fjölmiðla og þar með talið aðgerðir til að minnka umsvif Ríkisútvarpsins á auglýsingamarkaði um 560 millj. kr. Hugmyndin virðist vera að með því að draga úr auglýsingatekjum Ríkisútvarpsins skapist meira svigrúm fyrir einkarekna fjölmiðla til tekjuöflunar. Viðleitni hæstv. ráðherra til að bæta stöðu einkarekinna fjölmiðla er góðra gjalda verð. Það er mikilvægt að til séu fréttamiðlar sem vinna vandaðar fréttaskýringar, sinni rannsóknarblaðamennsku, séu vettvangur fyrir umræðu í samfélaginu og gæti þannig almannahagsmuna. Það er mikilvægt í lýðræðisþjóðfélagi.
Í fjölmiðlum undanfarna daga hefur ekki komið skýrt fram hvort og hvernig Ríkisútvarpinu verði bættar þær 560 millj. kr. sem tillögur hæstv. ráðherra gera ráð fyrir að tekjur stofnunarinnar dragist saman um. Því vil ég spyrja hæstv. ráðherra hvort hann hafi í hyggju að bæta Ríkisútvarpinu þessar 560 millj. kr. Ef svo er, hvernig hann hyggst gera það? Verður það með hækkun útvarpsgjaldsins eða á annan hátt?
Í kynningu hæstv. ráðherra kom jafnframt fram að hann hefði í hyggju að 400 millj. kr. færu í einkarekna fjölmiðla og þær greiðslur úr ríkissjóði ættu að hefjast strax á árinu 2019. Við skoðun á fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar er þó hvergi að finna neitt um þetta. Ég vil því spyrja hæstv. ráðherra, þar sem ekkert er um þetta í fjárlagafrumvarpinu (Forseti hringir.) sem ræður auðvitað fjárveitingum ríkisins, hvaðan fjármagnið eigi að koma.