149. löggjafarþing — 4. fundur,  14. sept. 2018.

fjárlög 2019.

1. mál
[16:00]
Horfa

mennta- og menningarmálaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F):

Virðulegi forseti. Ég þakka kærlega fyrir fyrirspurn hv. þingmanns. Það er auðvitað ekkert skrýtið að hjörtu okkar slái stundum saman í takt. Við vorum nú einu sinni saman í stjórnmálaflokki þannig að það er auðvitað ekkert skrýtið. Og ég sakna þín, Þorsteinn, verð bara að segja það, afsakið, hv. þingmaður.

Varðandi brotthvarf af framhaldsskólastiginu og verk-, iðn- og starfsnám. Þetta mun skipa mjög stóran sess er varðar mótun menntastefnu til ársins 2030. Það verður sérstök verkefnisstjórn sem fjallar um þetta. Ef við berum okkur saman við önnur ríki þá innritast mun færri inn í þessar greinar hjá okkur en til að mynda í Noregi eða Finnlandi eða bara í Evrópu. Auðvitað er það nokkuð sérstakt. Við höfum lagt meiri áherslu á bóknám en þessar þjóðir. Þess vegna erum við að setja okkur ákveðin markmið um að auka við og styðja við innritun í þessi fög. En það ánægjulega gerðist núna í vor að 33% aukning varð t.d. í rafiðn, svipuð aukning í húsasmíði. Við erum því vonandi að sjá einhvern viðsnúning en ég held hins vegar að ekki sé hægt að gera ráð fyrir því að þetta haldi áfram, við sjáum bara nokkrar vísbendingar.

Eitt af því sem ég hef tekið eftir þegar ég hef verið að heimsækja framhaldsskóla er að það eru nokkrir þættir sem skipta máli til að ná góðu hlutfalli er varðar innritun. Það er í fyrsta lagi að það sé góð kynning á náminu til foreldra og nemenda, í öðru lagi að hugað sé verulega að valgreinum á grunnskólastiginu. Það þarf að opna grunnskólana mun betur gagnvart mismunandi valgreinum er varðar iðn-, verk- og starfsnámið. Það eru margir þættir sem við getum unnið mun betur í.