149. löggjafarþing — 4. fundur,  14. sept. 2018.

fjárlög 2019.

1. mál
[16:02]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M):

Herra forseti. Ríkisstjórnin boðaði afnám virðisaukaskatts á bókum í fjármálaáætlun og málið var m.a. kynnt á vef Stjórnarráðsins. Hæstv. menntamálaráðherra skrifaði einnig grein í Morgunblaðið í apríl sl., minnir mig, um mikilvægi þess að afnema virðisaukaskatt af bókum. Nú hefur ríkisstjórnin fallið frá þessum áformum sínum og kom það nokkuð á óvart, sérstaklega í ljósi þess hversu rækilega það var auglýst af hálfu ríkisstjórnarinnar. Þess í stað á að styrkja bókaútgefendur beint, væntanlega í því augnamiði að þeir geti svo lækkað verð á bókum. Það sem skiptir máli í þessu er að fá upplýsingar um það hvort það sé tryggt að þessi leið sé a.m.k. jafn verðmæt bókaútgefendum og lesendum bóka.

Ég vil því spyrja hæstv. menntamálaráðherra: Kemur þessi leið til með að gagnast verndun menningararfsins og verndun íslenskrar tungu? Hvernig telur hæstv. ráðherra tryggt að þessi aðferð muni skila sama árangri og ef virðisaukaskatturinn hefði verið afnuminn? Þetta er svolítið mikilvæg spurning. Vonandi hefur hæstv. ráðherra ágætissvör við henni.

Síðan er einnig spurning hvort tryggt sé að þetta skili sama árangri gagnvart kaupendum bóka. Ef árangurinn á að vera sá sami, hvernig felur þetta þá í sér minni tilkostnað fyrir ríkissjóð eins og fram kemur í fjárlagafrumvarpinu?