fjárlög 2019.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að spyrja út í þetta mál því að þetta er mitt hjartans mál. Við höfum tekið eftir því að bóksala hefur dregist saman um 36% á síðustu tíu árum á Íslandi, hjá sjálfri bókaþjóðinni. Þess vegna fór ég ásamt fleiri hv. þingmönnum fram með frumvarp fyrir tæpu ári síðan þar sem lagt var til að virðisaukaskattur af bókum yrði afnuminn. Við nánari skoðun kom í ljós að það yrði árangursríkara að vera með beinan stuðning, 25% beinan stuðning við útgáfu hverrar bókar vegna þess að þá vorum við sérstaklega og eingöngu að ná til þeirra bóka sem eru á íslensku. Hin aðgerðin hefði líklega ekki verið eins markviss vegna þess að hún hefði þurft að ná til allra bóka sem eru til sölu. Þess vegna þótti okkur þegar við vorum búin að skoða nokkrar leiðir að þetta væri skilvirkari leið.
Ég verð að segja að ráðherrann sem stendur hér er bara þannig gerður að ef hann sér að það séu ný og jafnvel betri rök til að fara aðra leið að sama marki er hann tilbúinn til þess að breyta aðeins um aðferð til að ná sama markmiði. Ég hef verið sannfærð um að þetta muni skila meiri og betri árangri. Ég geri fastlega ráð fyrir því að verð á bókum muni lækka vegna þess að þetta er þannig stuðningur við útgáfu bóka á Íslandi að við höfum aldrei farið í aðra slíka vegferð. Ég held því að þeir sem eru í slíkri útgáfu taki tillit til þess.