fjárlög 2019.
Virðulegi forseti. Ég deili ekki þeim áhyggjum sem hafa kom fram út af þeim fyrirætlunum hæstv. menntamálaráðherra að minnka umfang ríkisins á auglýsingamarkaði sem nemur um fjórðungi eða svo. Það er einkum af tveimur ástæðum. Í fyrsta lagi hefur umfang Ríkisútvarpsins á þeim markaði aukist ár frá ári, hlutfallslegt umfang, og er nú svo komið að heildarhlutur Ríkisútvarpsins af auglýsingamarkaði á Íslandi er um 25% og er sennilega kominn yfir helming, yfir 50%, sé bara tekið tillit til auglýsinga í ljósvakamiðlum.
Í annan stað kemur það fram, öfugt við allar aðrar stofnanir og félög á vegum ríkisins, á bls. 329 í fjárlagafrumvarpinu að rauntekjur Ríkisútvarpsins af útvarpsgjaldinu á milli ára, þ.e. rauntekjur Ríkisútvarpsins í heild á milli ára að frátöldum launa- og verðlagsbreytingum, séu 12,9%, 13% raunaukning á tekjum umfram verðlagsbætur. Það felst að mestu leyti í því að fleiri gjaldendur koma til sögunnar með útvarpsgjaldið, það eru tæpar 400 milljónir sem skila sér þar. Með öðrum orðum: Ein stofnana ríkisins hefur Ríkisútvarpið, hvort sem litið er til stofnana eða félaga, sjálfvirka raunhækkun sem nemur um 400 milljónum á ári, á tekjunum.
Ég vil byrja á því að spyrja í fyrstu lotunni hæstv. menntamálaráðherra hvað má ætla að rauntekjur ríkisins, Ríkisútvarpsins, hafi hækkað mikið umfram verðlag á gildistíma þess þjónustusamnings sem núna er í gildi milli ráðuneytisins og Ríkisútvarpsins.