149. löggjafarþing — 4. fundur,  14. sept. 2018.

fjárlög 2019.

1. mál
[16:18]
Horfa

mennta- og menningarmálaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir mjög góða fyrirspurn og ég tek undir með hv. þingmanni, stofnun vísindasafns væri mjög gagnlegt verkefni, þjóðfélagsverkefni. Þegar ég ferðast sjálf fer ég oftast inn á vísindasöfn, ekki síst sem miða að þörfum barna og ungmenna. Það er alveg rétt sem hv. þingmaður segir, þetta er til þess gert að vekja áhuga á vísindum og tækni og hægt að gera ákveðnar tilraunir.

Hv. þingmaður spyr mig út í svigrúm og ég held að við ættum að skoða það. Við gætum tekið fyrstu skrefin í að móta stefnu um vísindasafn. Mér finnst þetta mjög spennandi hugmynd og ég held að þetta yrði til þess fallið að auka áhuga á söfnum. Ég legg sjálf mikla áherslu á það að söfnin séu aðgengileg og opin og ég held að aukin fræðsla um það sem er á söfnum sé eitt af því sem við eigum að leggja áherslu á. Eins og hv. þingmaður tekur líka eftir aukum við verulega fjármuni til rannsókna, um 9% á milli ára. Ég held að það sé líka mjög brýnt að við kynnum betur fyrir börnunum hvaða tækifæri eru í þessu þannig að safn sem einblínir á vísindi og vísindasögu finnst mér vera prýðishugmynd.