149. löggjafarþing — 4. fundur,  14. sept. 2018.

fjárlög 2019.

1. mál
[16:29]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Eins og ég segi er þetta svo stuttur tími. Ég ætlaði líka að nefna aukna áherslu á starfs- og verknámið sem ég upplifi að verði loksins raungert. Það er búið að tala um það í svo mörg ár að lyfta því hærra en svo gerist einhvern veginn afskaplega lítið.

Ég er líka ánægð með að sjá að það á að bregðast við vegna endurbóta á húsnæði Háskólans á Akureyri vegna rakaskemmda og ekki síður að það á að bjóða upp á meistaranám í sjávarbyggðafræði við Háskólasetur Vestfjarða undir stjórn HA.

Ég sat áhugavert spjall með rektori HA á LÝSU um síðustu helgi á Akureyri. Hann hugsar gjarnan stórt og út fyrir rammann og þar er mjög margt sem varðar framtíðarsýn Háskólans á Akureyri sem væri áhugavert að taka sérstakt samtal um.

Ég hef fengið athugasemdir um að framhaldsskólana vanti ráðleggingar eða upplýsingar um persónuverndarmálin, skjalamálin og jafnlaunavottun. Þeir segja að það sé lítill stuðningur úr ráðuneytinu. Þá vantar einhverja miðlæga aðstoð og mig langar að spyrja ráðherrann út í það.

Eins er þetta með að erfitt eða kostnaðarsamt sé að setja skjalakerfið upp. Eru sérstaklega eyrnamerktir fjármunir til þess? Þess eru dæmi að skólar þurfi að ráða starfsfólk í þetta sérstaklega.

Persónuverndarfulltrúi má ekki vera einn af stjórnendunum og þá verður til nýtt starf innan skólanna. Er eitthvert fyrirkomulag eða samtal á milli t.d. minni skóla? Ég er frekar að hugsa um þá þar sem maður hefur séð víða í stjórnsýslunni að það sé samtal á milli sveitarfélaga um persónuverndarvinnuna alla saman. Er þá eitthvert sérstakt fjármagn með því? Þetta eru þær ábendingar sem maður hefur fengið núna þegar fjárlagafrumvarpið (Forseti hringir.) hefur litið dagsins ljós.