fjárlög 2019.
Virðulegur forseti. Ég held að það sem hv. þingmaður vísar til sé kostnaður vegna umsækjenda um vernd og vegna kvótaflóttafólks í hlutfalli af framlögum. Það sem hv. þingmaður hefði líka getað verið að tala um er hlutfall af þeim peningum sem við setjum í þetta sem fer til þróunarlanda. Við erum með langhæsta hlutfallið af Norðurlöndunum. (LE: Það er ekki rétt.) Þá er ég að vísa til þess að við setjum mest til þróunarlandanna af því sem við setjum inn, miðað við þær tölur sem ég hef séð. Ég er ekki að tala um kvótaflóttafólk, ég er að tala um annað, það hvernig menn framfylgja þróunaraðstoð sinni. (LE: Við erum miklu stærra hlutfall af …) — Af því að þetta er tvennt. Það er annars vegar þetta. Þetta er í rauninni hvernig menn setja hlutina fram. Við förum eftir reglum DAC. Við ætlum ekki að breyta bókhaldinu hjá okkur. Síðan geta menn sagt að við eigum að setja meira eða minna o.s.frv. En þetta snýst um það hvernig menn bera saman á milli landa. Það sem ég vek athygli á, vegna þess að við erum að tala um hvað við setjum hátt hlutfall af peningunum til þróunarlanda, er að við setjum hlutfallslega meira af þróunarfénu okkar til þróunarlandanna en hin Norðurlöndin. Þá er ég ekki að vísa í vernd eða til kvótaflóttafólksins.
Hv. þingmaður getur kynnt sér þetta í utanríkismálanefnd, getur kallað eftir þeim upplýsingum. Það er alveg rétt að menn framfylgja þessu eftir ýmsum leiðum. Við erum með mjög lágt hlutfalli sem við notum innan lands, ætli það sé ekki fyrst og fremst það sem snýr að háskólum Sameinuðu þjóðanna. Norðurlandaþjóðirnar og aðrar þjóðir eru með ýmislegt annað sem þær nota til að hjálpa þróunarríkjunum sem er hins vegar nýtt í heimalandinu. Eitt land Evrópu eyðir 90% eða 95% af því sem það setur í þróunaraðstoð í heimalandinu. Það er í mörg horn að líta. Þess vegna skiptir miklu máli, og ég hvet til þess, (Forseti hringir.) að við ræðum þau mál á dýptina. Ég er ánægður að heyra að hv. þingmaður er alveg sammála mér hvað það varðar.