fjárlög 2019.
Frú forseti. Við ræðum hér fjárlög og þann kafla í fjárlögunum er varðar utanríkismálin. Hér er hæstv. utanríkisráðherra til svara.
Í umræðu í tengslum við fjármálaáætlun til næstu fimm ára á síðasta þingvetri fagnaði ég þeim ágætu og góðu hlutum sem þar komu fram er vörðuðu utanríkismál sem sýndu aukna áherslu á auðlinda- og umhverfismál í utanríkismálum og verkefni á alþjóðavísu sem Ísland hefur undirgengist er varða loftslagsbreytingar.
Mig langar til þess að beina spurningum til hæstv. utanríkisráðherra er varða áframhald á verulega beinni aukningu á fjármunum og mikla hlutfallsaukningu á beinu framlagi Íslands innan NATO til að tryggja varnir Íslands, sem þarfnast sérstakra skýringa og sérstakrar umræðu í þingsal. Vil ég óska eftir skýringum á þeim auknu fjárframlögum sem fram koma í fjárlögunum við hæstv. utanríkisráðherra, frú forseti.
Svo verð ég að taka undir með formanni Samfylkingarinnar sem talaði um móttöku kvótaflóttamanna. Eins og fram kemur á bls. 217 í fjárlögunum er þjónusta og móttaka kvótaflóttamanna flokkuð sem framlög til þróunarsamvinnu. Andstætt því sem fram kom í máli hæstv. utanríkisráðherra áðan eru ekki öll lönd innan DAC á þeirri skoðun að flokka eigi það með þessum hætti. Þess vegna vil ég gjarnan fá að heyra frá hæstv. utanríkisráðherra hvort það sé stefna Íslands að slá þessu saman og hvort við höfum unnið að því með markvissum hætti innan DAC að flokka þetta saman, vegna þess að hér er um að ræða verulegar fjárhæðir eins og fram kemur á bls. 217. Hluti þessara útgjalda er áætlaður um 1.707 millj. kr. á næsta ári. Það væri mjög gott að fá útskýringar á því, frú forseti.