149. löggjafarþing — 4. fundur,  14. sept. 2018.

fjárlög 2019.

1. mál
[17:20]
Horfa

Smári McCarthy (P):

Frú forseti. Það er gott að sjá í frumvarpinu að aukið fjármagn sé sett til sendiráðsins í Brussel sem endurspeglar alvörueflingu á hagsmunagæslu okkar gagnvart EES-samningnum. Við hæstv. utanríkisráðherra erum nefnilega sammála um mikilvægi þess að leggja mikla áherslu á hagsmuni Íslands í alþjóðaviðskiptum.

Þá kemur aðgerðapunkturinn um að móta heildarstefnu á sviði utanríkisviðskipta, sem er jákvætt skref, að ég held. En það mætti svo sem segja að heildarstefna hingað til hafi verið m.a. að fylgja EES og vinna með EFTA-ríkjunum hvað fríverslunarsamninga varðar, þó með undantekningum í tilfellum Kína og Færeyja, og svo að vera með Íslandsstofu, sem nýlega er búið að breyta um rekstrarform á, og viðskiptafulltrúa í sendiráðum og þannig markaðssetja landið. Mörgum gæti þótt það gott, öðrum gætu fundist þetta vera heldur mikil lausatök. Ég er opinn fyrir framþróun.

Mig langar til þess að spyrja: Hver mun móta þessa nýju utanríkisviðskiptastefnu? Hvenær hefst sú vinna? Hvaða áherslur mun ráðherra leggja sérstaklega gagnvart þriðju ríkjum? Munum við horfa fram á fleiri tvíhliða samninga og þá við hvaða lönd? Hvað er hæstv. ráðherra helst að hugsa í þeim efnum? Hvernig rímar sú vinna við EES-samninginn?

Auðvitað verðum við að hugsa svolítið í samhengi við Brexit, sem nú eru 196 dagar í. Gerir hæstv. ráðherra ráð fyrir því að við förum út í tvíhliða viðskiptasamninga við Breta? Eða er kannski markmiðið að fylgja EFTA-ríkjunum í því?

Svo verður að spyrja út í fjármagnið varðandi þetta. Það er engin tiltekin aukning í fjárlagafrumvarpinu fyrir þetta markmið. Ég velti því fyrir mér hvað þetta muni kosta og hvað verði þá ekki gert á móti.

Svo er að lokum kannski rétt að spyrja, úr því að þetta er eingöngu um alþjóðaviðskiptapartinn: (Forseti hringir.) Á Ísland ekki loksins að fá almenna heildarstefnu varðandi utanríkismál almennt?