fjárlög 2019.
Frú forseti. Ég vil gjarnan taka upp þráðinn þaðan sem frá var horfið hjá hv. samflokksmanni mínum. Mig langar að spyrja svolítið út í mannréttindamál og áherslur hæstv. ráðherra í þeim. Ég horfi þá sérstaklega til nokkurra aðgerða sem finna má á bls. 210 í fjárlagafrumvarpinu, fyrst og fremst aðgerða 4 og 5 þar sem fram kemur að ætlunin sé að styrkja málsvarastarf, samvinnu og þátttöku á vettvangi alþjóðastofnana og í svæðisbundnu samstarfi, auka samráð innan utanríkisþjónustunnar og Stjórnarráðsins alls, að styrkja stofnanir, verkefni og viðburði sem stuðla að aukinni virðingu fyrir mannréttindum, jafnrétti, þjóðarétti og mannúð á heimsvísu sem og að fullgilda og staðfesta alþjóðlega samninga. Það kemur þarna fram líka.
Ég velti fyrir mér nokkrum samverkandi þáttum. Í fyrsta lagi erum við ekki með neitt sendiráð í Strassborg eins og hefur komið fram og þá gagnvart Evrópuráðinu, en þar munum við einnig taka við formennsku fljótlega, í ráðherraráði Evrópuráðsins.
Við eigum sæti í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna. Við eigum líka sæti í barnaréttarnefnd Sameinuðu þjóðanna. Íslendingur gegnir hlutverki forstjóra ODIHR sem er mannréttindastofnun Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu og sú sem hér stendur gegnir formennsku í laga- og mannréttindanefnd Evrópuráðsþingsins. Ég veit ekki til þess að neinn formlegur samráðsvettvangur eða einhvers konar samhæfingarvettvangur sé til fyrir þessi mörgu hlutverk sem við gegnum sameiginlega. Það leiðir mig að öðru markmiði sem finna má neðst á sömu síðu, að staðið verði vel að setu Íslands í mannréttindaráðinu á árinu 2019 og unnið að áherslum sem lúta m.a. að jafnréttismálum, réttindum hinsegin fólks og umbótum innan ráðsins.
Mér finnst ég oft greina mjög misvísandi stefnur Íslands gagnvart mannréttindamálum. Við ætlum t.d. að fara að fullgilda einhvern fríverslunarsamning við Filippseyjar, við ætlum að taka þátt í söngvakeppni (Forseti hringir.) sjónvarpsstöðva í Tel Aviv í Ísrael en höfum enga sértæka mannréttindastefnu.
Ég spyr hæstv. ráðherra hvort hann hafi áhuga á því að koma á slíkri stefnu og hvort hann vilji koma á samræmingu þeirra mannréttindastofnana sem við tökum þátt í.