149. löggjafarþing — 4. fundur, 14. sept. 2018.
fjárlög 2019.
1. mál
Frú forseti. Ég stóð nú bara upp hérna til að þakka ráðherra fyrir einkar skýr og glögg svör. Ég vil kannski nefna það að þær tölur sem ég bar hérna fram voru sem næst lesnar upp af bls. 56 í fylgiriti með fjárlagafrumvarpinu þannig að ég vil bara treysta því sem þar stendur.