fjárlög 2019.
Frú forseti. Það vekur ákveðna furðu að hæstv. dómsmálaráðherra skuli gleðjast svona mjög yfir áhyggjum þingmanna og borgara, lögreglunnar sjálfrar, fyrrverandi gegnheils Sjálfstæðismanns og fyrrverandi yfirlögregluþjóns, Geirs Jóns Þórissonar, af gríðarlegri manneklu í almennri löggæslu á landinu.
Talandi um búsáhaldabyltinguna þá stóð einmitt umræddur Geir Jón Þórisson, fyrrverandi varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, í ströngu hér ásamt öðrum lögreglumönnum og voru þar allir kallaðir á dekk. Frá þeim tíma hefur flokkur hæstv. dómsmálaráðherra nánast linnulaust annast málefni löggæslunnar og í dag, tíu árum seinna — þegar íbúum hefur fjölgað umtalsvert, þegar ferðamönnum hefur fjölgað umtalsvert, þegar staðan í þeim verkefnum sem lögreglan þarf að annast er þannig að það þarf mun fleiri á vakt en áður var — hefur lögreglumönnum fækkað. Þetta veit hæstv. dómsmálaráðherra þó að hún hafi, að því er virðist, enga reynslu af löggæslumálum, öfugt við þá sem hér stendur sem hefur starfað sem lögmaður, verjandi og réttargæslumaður árum saman.
Já, sú sem hér stendur hefur góða reynslu af því ástandi sem ríkir í löggæslumálum og hefur bara kynnst frábærum lögreglumönnum í sínum störfum sem eru að bugast undan álagi, sem fara í langtímaveikindi, sem flýja til annarra starfa. Það er eiginlega alveg ótrúlegt að hæstv. dómsmálaráðherra sitji hér glottandi yfir því ástandi sem hún býður þjóðinni upp á í löggæslumálum landsins. (Forseti hringir.) Ég held að hún ætti frekar að reyna að ná eyrum hæstv. fjármálaráðherra og reyna mögulega að fá einhverja fjármuni inn í málaflokkinn því að þar er svo sannarlega þörf. Það er talið að 3 milljarða þurfi til að hafa lágmarksmönnun í löggæslu á landinu.