fjárlög 2019.
Virðulegur forseti. Ég nefndi einungis að ég gleðst yfir því að hv. þingmaður hefur kannski snúið frá villu síns vegar í afstöðu sinni til lögreglunnar og vill standa vörð um lögregluna og nefnir að fyrrverandi varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins hafi staðið vörð hér eins og fleiri lögreglumenn í búsáhaldabyltingunni, ekki síst til þess að hafa afskipti af mönnum, fólki eins og hv. þingmanni sem stóð hér og gargaði og gólaði á torgum úti, talaði niðrandi til lögreglunnar, vísaði til talibana og hryðjuverkalögreglumanna sem hefðu þurft að hafa afskipti af mótmælendum hér úti. Á þeim tíma tók þáverandi ríkisstjórn þá ákvörðun að skera sérstaklega niður til lögreglunnar, (HVH: Eftir hrun.) skera sérstaklega niður til lögreglunnar og bætti ekki í og horfði ekki frá villu síns vegar (HVH: Eftir stjórnarsetu Sjálfstæðisflokksins.) þar til Sjálfstæðisflokkurinn tók við stjórnartaumunum í þessum málaflokki og hefur síðan þá bætt verulega í fjárheimildir, til aukningar fjárheimilda til lögreglunnar. (HVH: Þetta er …) Ég hvet hv. þingmann og aðra sem hér hlusta til að fara inn á heimasíðu dómsmálaráðuneytisins og sjá þar hlutlaust yfirlit yfir þær auknu fjárheimildir sem hafa orðið til löggæslunnar frá árinu 2007. Það þarf enginn að velkjast í vafa um það (HVH: Þyrlur eru ekki löggæsla.) —
Forseti. Fæ ég frið til þess að svara andsvari hv. þingmanns?
(Forseti (BHar): Hæstv. ráðherra hefur orðið.)
Ég hvet menn til þess að skoða þetta. Það er alveg óyggjandi að fjárheimildir hafa verið auknar til löggæslunnar allt að því, má segja, umfram öll önnur málefnasvið innan Stjórnarráðsins. Það er alveg sama hvað hv. þingmanni kann að finnast um það og vilji ekki kannast við það, þannig er það. Lögreglan sjálf og fagmenn sem þar starfa forgangsraða þessu fé til þeirra verkefna þar sem þeirra er helst þörf á hverjum tíma. Það er verið að fjölga lögreglumönnum á götunni, það er verið að fjölga lögreglumönnum í vandasömum verkefnum við rannsóknastörf, m.a. í kynferðisbrotum sem hafa setið á hakanum og gerðu það, ekki síst á þeim tíma þegar flokkur hv. þingmanns fór (Forseti hringir.) með þann málaflokk. Ég hef ekki heyrt neitt annað en mikla ánægju hjá lögreglunni almennt um þróun þessara mála. Þótt menn taki eitthvert fjölmiðlauppistand (Forseti hringir.) þegar kjaraumræður standa hér rétt yfir er það þannig að mikil ánægja hefur verið hjá lögreglunni með þróun þessara mála og jafnvel þannig að menn hafa nú fjárheimildir til að fjölga en hafa (Forseti hringir.) ekki einu sinni haft tök á því að fjölga nógu hratt þótt þeir hafi fjárheimildir til þess.