fjárlög 2019.
Hæstv. forseti. Ég verð að viðurkenna að mér þykir þessi umræða hafa farið illa af stað. Fyrst ber að þakka það sem vel er gert, auðvitað er það vel gert að bæta í landmæragæslu á Keflavíkurflugvelli, ég þekki þar bærilega til, og bæta þar við um fimm mönnum á vakt, eins og mér sýnist ef þarna er um að ræða vaktavinnumönnun. Ég set hins vegar spurningarmerki við að verið sé að dreifa kröftum landamæravörslu og setja hluta hennar til ríkislögreglustjóra. Ég set reyndar einnig spurningarmerki við það hvernig ríkislögreglustjóraembættið hefur vaxið á kostnað hinna hefðbundnu lögregluembætta í landinu. Það er óyggjandi.
Ég ætla ekki að fara að hengja mig í 2007, ég ætla að fara til ársins 2000. Ef við ætlum að færa fjölda lögreglumanna á höfuðborgarsvæðinu til þess sem var árið 2000 þurfum við 1 milljarð kr. Við þurfum 83 stöðugildi sem, nota bene, eru ekki nema 17 sólarhringsmenn vegna þess að það eru fimm stöðugildi í einum sólarhringsmanni.
Ég verð að viðurkenna að ég óttast það skilningsleysi sem mér finnst skína úr orðum hæstv. ráðherra á almennri löggæslu. Ég bara skil hana ekki, ég verð að viðurkenna það. Ég er þakklátur fyrir það átak sem gert var í kynferðisbrotadeildinni í fyrra, það kemur sér mjög vel. Það olli að vísu kúfi í rannsóknardeildinni af því að þetta er sífelldur bútasaumur. Það er engin ein stefna. Ég ætla ekki að karpa við hæstv. ráðherra um hvort mönnun í lögreglunni sé eins og hún var árið 2000. Ég ætla að leggja fram skriflega fyrirspurn eftir helgina þar sem það kemur í ljós. Þá þurfum við ekki að karpa um skilningsleysi ráðherrans á þessum málum. Ég óttast líka það sem virðist vera á fylgiblaði með fjárlagafrumvarpinu, þ.e. að ekki er að sjá neina varanlega aukningu í fjárheimildum lögreglu höfuðborgarsvæðisins til ársins 2021.
Ég ætla ekki að standa í karpi við þennan hæstv. ráðherra. Ég mun leggja fram skriflega fyrirspurn og svo skulum við lesa hana saman, ég og ráðherrann.