fjárlög 2019.
Virðulegur forseti. Hv. þingmaður og ég deilum áhuga á kirkjunnar málum og höfum bæði áhuga á, vænti ég, að kirkjunni vegni vel í öllu tilliti. Það er hins vegar þannig að kirkjan hefur fengið meira og meira sjálfstæði og að mínu mati, og að ég held kirkjunnar líka, er það til framtíðar litið þróun sem mun halda áfram. Kirkjan er og á að vera sjálfstæð, sjálfstæðari en hún er. Ég held að þau málaferli sem hv. þingmaður rakti í andsvari séu dæmi um mál þar sem kirkjan er algjörlega sjálfstæð. Það kemur aldrei inn á borð ráðherra eða ráðuneytis að meta slík mál sem upp koma. Auðvitað er það hvað kirkjuna varðar og alla aðra vont ef menn þurfa að leita til dómstóla en það er þó ekki alslæmt. Það er einmitt vettvangurinn til þess að gera út um hluti, fá niðurstöðu, þótt menn reyni auðvitað eins og hægt er að ná sáttum. Ef það gengur ekki verður að útkljá málið fyrir dómi. Úr því að báðar stofnanirnar heyra undir dómsmálaráðuneytið, þ.e. kirkjan að svo miklu leyti sem hún er ekki sjálfstæð og dómstólarnir líka, held ég að þær geti átt ágætissamstarf og að skorið verði úr þeim ágreiningi.
Þar sem fjárlagafrumvarpið er til umræðu vil ég árétta varðandi fjárhæðirnar sem hv. þingmaður nefndi og vísaði til í fjárlagafrumvarpinu að það hefur verið jafnað upp með fjáraukalögum sem nemur fjárhæð til að mæta kirkjujarðasamkomulaginu. Við erum sammála um, hv. þingmaður og ég, að það samkomulag beri að efna. Það hefur ríkið gert undanfarin ár eftir brotalöm árin eftir hrun.