149. löggjafarþing — 4. fundur,  14. sept. 2018.

fjárlög 2019.

1. mál
[18:18]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Mig langaði til að ræða við hæstv. dómsmálaráðherra um mansal, um það sem við höfum verið að horfa upp á undanfarið í samfélaginu, þar sem ég sé hvergi orðið mansal nefnt í fjárlagafrumvarpinu. Af hálfu ráðherra var boðuð aðgerðaáætlun gegn mansali sem ég held að hafi átt að líta dagsins ljós nú í haust. Mig langar aðeins að forvitnast um það hver staðan á þeirri aðgerðaáætlun er.

Mig langar líka til að velta því upp með ráðherra og spyrja hvort þeir aðilar sem best þekkja til, verkalýðshreyfingin, hafi verið með í vinnu við þessa aðgerðaáætlun. Ég held að það sé alveg ljóst að við þurfum að hafa verkalýðshreyfinguna virka með okkur; það eru þau sem eru að takast á við þetta fyrst og fremst. Ég hef líka áhyggjur af því að löggæslan hafi ekki fjármagn til að sinna þessum hluta starfsins, þ.e. að fylgja mansali eftir, hvort sem um er að ræða vinnumansal eða annars konar mansal. Það er nú bara þannig, eða var a.m.k., að á borð lögreglunnar koma vikulega ábendingar um mansal.

Ég vil spyrja hæstv. ráðherra: Hvað líður aðgerðaáætluninni? Eru fjármunir settir í að fylgja slíkri áætlun eftir?