149. löggjafarþing — 4. fundur,  14. sept. 2018.

fjárlög 2019.

1. mál
[18:20]
Horfa

dómsmálaráðherra (Sigríður Á. Andersen) (S):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurn um þetta umfangsmikla mál og mikilvæga. Það gefur mér líka tækifæri til að nefna það sem ég gat ekki nefnt í svörum við andsvörum hv. þingmanns sem taldi lítið fé renna til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Fyrst vil ég nefna það að aðgerðaáætlun um mansal hefur verið í vinnslu í ráðuneytinu. Það er rétt, þeirri vinnu mun vonandi ljúka nú á haustdögum. Ég mun vonandi leggja fram skýrslu eða aðgerðaáætlun um mansal fyrir jól.

Mansal er í eðli sínu og í þessum fræðum hluti af skipulagðri brotastarfsemi. Sem slíkt heyrir það undir rannsókn á skipulagðri brotastarfsemi hjá lögreglunni. Á þessu ári var sérstaklega gert ráð fyrir 80 millj. kr., og kom það inn í fjárlögin fyrir þetta ár, vegna skipulegrar brotastarfsemi. Það mun halda áfram. Það fé, 80 milljónir vildi ég sagt hafa, hefur runnið til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu svo það er nú ekki rétt sem menn hafa haldið hér fram í andsvörum við mína ræðu um að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafi ekki fengið neina aukningu fjármuna. Það er þvert á móti. Þetta er hluti af þeirri aukningu sem hefur runnið til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, 80 milljónir til rannsóknar á brotastarfsemi.

Þess utan kynnti ég fyrr á þessu ári, því var hrundið strax í framkvæmd, fjölgun lögreglumanna til rannsóknar á kynferðisbrotum um allt land, í öllum embættum. Það er auðvitað líka málaflokkur sem getur komið inn á mansal, þannig að mikil vitundarvakning hefur orðið hjá löggæslunni um þetta; námskeið og alls kyns (Forseti hringir.) fræðsla hefur farið fram innan löggæslunnar í þessum málum. Það er vel.