149. löggjafarþing — 4. fundur,  14. sept. 2018.

fjárlög 2019.

1. mál
[18:30]
Horfa

dómsmálaráðherra (Sigríður Á. Andersen) (S):

Virðulegur forseti. Þetta eru efnismiklar spurningar. Hvað varðar mannréttindastofnun sem kynnt er á þingmálaskrá minni fyrir framlagningu eftir áramót hefur það mál verið skoðað nokkuð í ráðuneytinu og stjórnsýslunni. Fyrir liggur að mælst er til þess á alþjóðavettvangi að Ísland komi sér upp slíkri stofnun sem yrði alhliða hlutlaus, eins hlutlaus og hægt er, það verður náttúrlega engin stofnun svo hlutlaus að hún falli af himnum ofan, einhvern veginn þarf að fjármagna hana, en að hún verði hlutlausari en t.d. það sem við höfum í dag sem er Mannréttindaskrifstofa Íslands. Mér hefur reyndar líkað ákaflega vel við hana vegna þess að það er nokkurs konar sjálfsprottinn vettvangur mannréttindasamtaka á borð við Amnesty International og fleiri sem koma að rekstrinum en ríkið hefur styrkt árlega með fjárhæð og gert stofnuninni kleift að vera með starfsmann. Dómsmálaráðuneytið hefur styrkt hana, gott ef ekki fleiri ráðuneyti líka, ég held það, t.d. velferðarráðuneytið. Frá mínum bæjardyrum séð finnst mér það fyrirkomulag meira aðlaðandi en ný ríkisstofnun. En ég hef verið að láta skoða sérstaklega hvernig hægt væri að koma til móts við þau tilmæli sem við höfum fengið af alþjóðavettvangi. Þetta er með ýmsum hætti gert t.d. annars staðar á Norðurlöndum og í löndunum í kringum okkur. Á sumum stöðum er háskólunum falið að gera þetta, mannréttindastofnunum innan háskólans. Við höfum eina slíka starfandi líka. Mér fannst það einnar messu virði a.m.k. að skoða alla möguleika í stöðunni.

Allt að einu hyggst ég leggja til að slík stofnun verði sett á laggirnar og um leið verði dregið úr stuðningi við Mannréttindaskrifstofu Íslands, bæði af hálfu dómsmálaráðuneytisins og annarra ráðuneyta, þannig að það fé myndi þá (Forseti hringir.) renna inn í þá stofnun. Það verður áhugavert að ræða þetta við þingið vegna þess að ég held að uppi séu mörg sjónarmið sem (Forseti hringir.) væri vel þess virði að fara yfir.