fjárlög 2019.
Virðulegur forseti. Varðandi mannréttindastofnun vil ég nefna að engin stofnun er svo sjálfstæð að hún sé engum háð. Ef hún á að vera styrkt af fé frá skattgreiðendum koma fjárframlögin auðvitað frá löggjafarvaldinu, undan því verður ekki komist. Það er engin stofnun svo sjálfstæð þótt ég heyri í auknum mæli kallað eftir því af hálfu stofnana, að vegna þess að þær séu svo mikilvægar þurfi þær að vera sjálfstæðar og það megi helst ekki sjást hvaðan peningarnir koma. Það er alveg þvert á það sem við vinnum eftir í dómsmálaráðuneytinu þessa dagana við uppfærslu á peningaþvættistilskipun og gagnsæismálum og öllu því. Við þurfum að geta rakið peningaslóðina og í tilfelli reksturs opinberra stofnana er slóðin alltaf rakin til skattgreiðenda í gegnum þetta ágæta þing hér.
Hvað varðar útlendingamálin er rétt að þarna er sett inn hefðbundin aðhaldskrafa og það er ekkert sem ég hef sérstaklega áhyggjur af í ljósi þróunar mála. Við horfum sem betur fer á einhvern samdrátt í umsóknum um hæli en ég hef nefnt að það eru oft erfiðari umsóknir sem kalla á meiri tíma og þar af leiðandi meiri kostnað. Ég hef ekki sérstakar áhyggjur af því hvernig þetta hefur verið sett fram í fjárlagafrumvarpinu, enda verður ekkert undan því vikist að við þurfum að standa straum af kostnaði þeirra sem hingað leita og dvelja hér í lögmætri dvöl og af brottflutningi þeirra sem dvelja hér í ólögmætri dvöl. Það verður ekki undan því vikist, enda hefur það verið auðsótt mál hjá þinginu og fjármálaráðherra að búa svo um hnútana að hægt sé að bregðast við því ef óvænt atvik koma upp.
Hvað sértæku spurningarnar varðar vísaði hv. þingmaður til aðgerða sem við stöndum í sem eru til komnar vegna kröfu um aðgerðir hér vegna Schengen-samstarfsins og þar eru m.a. farþegalistagreiningar og fjölgun landamæravarða. Fjölgað verður um hátt í 70 (Forseti hringir.) stöðugildi á næsta ári við löggæslustörf og stór hluti þeirra við landamæravörslu, m.a. farþegagreiningu.