149. löggjafarþing — 4. fundur,  14. sept. 2018.

fjárlög 2019.

1. mál
[18:42]
Horfa

Willum Þór Þórsson (F):

Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið. Auðvitað er mjög gott að fá greinargott svar þegar spurningin er ekki til staðar. Ég þakka kærlega fyrir það.

Það er akkúrat kjarni málsins þegar við erum farin að taka þetta saman á ákveðin tímabil, og hæstv. ráðherra kom inn á það, og eins og er á fjölmörgum öðrum málefnasviðum er viðmiðsárið 2013 má segja og svo verður raunaukning til flestra málefnasviða í kjölfarið. Það á við um fjárveitingar og fjárheimildir til lögregluembætta jafnframt.

Spurningin var í raun og veru sú að ef við skoðum fjölda ársverka hefur þeim fjölgað mismikið eftir embættum, einhvers staðar fækkað, en það fer væntanlega eftir því hvar brýnasta þörfin er. Fjárveitingar og fjárheimildir hafa að raungildi aukist. Það hefur orðið viðsnúningur á fjárhagsstöðu lögregluembætta sem gefur manni von um að hægt sé að ná betur til framtíðar um þetta mikilvæga málefni.

Spurningin var því hvort þetta væri sú áætlun sem mætti draga af samanburði þegar við erum búin að taka allt hér til skoðunar út frá þróun launavísitölu og verðlagsvísitölu vegna þess að það er gríðarlegur munur þar á milli og laun vega auðvitað mjög misþungt eftir því hversu mannaflsfrek málefnasviðin eru. Þegar allt er tiltekið ætti fjárhagsstaðan að vera betri og við ættum að vera í færum að ná betur utan um þennan málaflokk.