fjárlög 2019.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsögu hennar í málaflokknum. Við ræðum um lögregluna. Margir eru búnir að koma inn í það mál og ég ætlaði að bæta örlitlu við áður en ég fer í annað.
Það sem skiptir máli og menn hafa áhyggjur af er löggæslan, aðallega úti á landi, í dreifðum byggðum. Þar eru lögreglumenn oft einir á ferð og langt í aðstoð. Það slæma við stöðuna eins og hún er í dag er að það er fámenn lögregla úti á landi í dreifðum byggðum.
Ég fagna því auðvitað með hæstv. ráðherra ef hún ætlar að gefa í varðandi löggæsluna, landamæralöggæslu og rannsóknir einstakra brota, en það sem ég hef kallað eftir og kalla áfram eftir er að meira fé sé sett í almenna löggæslu. Hæstv. ráðherra segir að hún ætli að fjölga lögreglumönnum um 70. Er þá verið að tala um hreina fjölgun eða er tekið tillit til þess að á hverju ári hætta einhverjir tugir lögreglumanna, sérstaklega undanfarin ár?
Fjöldi lögreglumannanna náði þeim hæðum þegar best lét á árum áður að vera um 1,7 eða 1,8 lögreglumenn á hverja þúsund íbúa. Það hlutfall hefur dalað síðustu áratugi og var komið niður í 1,4 í fyrra. Þannig að ég spyr ráðherra: Hversu marga lögreglumenn telur hún að æskilegt væri að hafa á næstu árum þegar gefur verður í í þessum málaflokki miðað við hverja þúsund íbúa? Hversu marga lögreglumenn telur hún að ætti að stefna að því að hafa? Í fyrra voru þeir 1,4 á hverja þúsund íbúa, hugsanlega 1,5 í ár. Hversu hátt telur hún að fara ætti í þessu?
Annað sem ég vil spyrja hana: Er hæstv. ráðherra sátt við ástand löggæslumála á Íslandi? Telur hæstv. ráðherra fjölda starfandi lögreglumanna vera ásættanlegan miðað við aukinn fjölda ferðamanna og sífellt fleiri og flóknari verkefni lögreglu, (Forseti hringir.) ekki síst aukna skipulagða glæpastarfsemi yfir landamæri?